Jómfrúarræða á Alþingi

Í gær flutti ég svokallaða jómfrúarræða á Alþingi, en það er fyrsta ræða sem nýr þingmaður heldur.  Á dagskrá var frumvarp ríkisstjórnarinnar um breytingu á lögum um Stjórnarráðið.

Tillaga stjórnarinnar er að sameina landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneyti og að flytja tryggingamál frá heilbrigðisráðuneyti til félagsmálaráðuneytis.  Einnig er lagt til að heimilt verði að sameina ráðuneyti án lagabreytinga.  Í raun eru þessar breytingar ekki stórfelldar í sjálfu sér, nema ákvæðið um að með forsetaúrskurði sé hægt að sameina ráðuneyti.  Þar er í raun brotið blað, því allt frá því Bjarni Benediktsson beitti sér fyrir setningu stjórnarráðslaga árið 1969, hefur fjöldi og heiti ráðuneyta verið bundið í lögum.  Það var gert til að koma sæmilegu skikki á stjórnsýsluna og til að tryggja vissan stöðugleika.  Engin sérstök rök eru fyrir þessari breytingu, því eftir sem áður er hægt að flytja málaflokka milli ráðuneyta með reglugerð.

Það sem vekur sérstaka athygli er að ríkisstjórnin hyggst ráðast í umfangsmiklar breytingar á stjórnarráðinu fyrir utan þær breytingar sem lagafrumvarpið sýnir, eða það var amk. boðað við myndun stjórnarinnar.  Þær breytingar eru hins vegar hvergi sýnilegar og algerlega óeðlilegt að ræða stjórnarráðsbreytingar án þess að hafa heildarmyndina til hliðsjónar.

Ræðu mína um málið má lesa hér á síðunni.


mbl.is Forsætisráðherra fái vald til að fækka ráðuneytum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt
Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Páll Símonarson

Heill og sæll Árni Þór Sigurðsson.

Ég tek undir þessi orð þín ég hlustaði á þig í ræðustól þú varst mjög málefnalegur og með þín rök á hreinu.

Enda kom forsætisráherra strax á eftir þér og þakka þér sértaklega málefnalegar umræður. Þínir menn mættu taka þig til fyrirmyndar.

Jóhann Páll Símonarson.

Jóhann Páll Símonarson, 6.6.2007 kl. 00:04

2 Smámynd: Óttarr Makuch

Heill og sæll Árni,

Til hamingju með jómfrúarræðuna.  Hún var góð og var ekki innmúruð í þann neikvæða tón sem oft virðist elta Vg þingmennina.  Hlakka til þess að fylgjast með þér á kjörtímabilinu þó svo við séum ekki alltaf sammála, en það er svo sem hluti af lífinu líka .

Óttarr Makuch, 6.6.2007 kl. 08:48

3 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Blessaður,

hlustaði á þig í gær. Til hamingju með jómfrúarræðuna.

Ingibjörg Hinriksdóttir, 7.6.2007 kl. 10:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband