Steingrímur óumdeildastur

Í skoðanakönnun Fréttablaðsins sem birtist í morgun er greint frá trausti kjósenda á stjórnmálaleiðtogunum.  Það vekur athygli að formaður Sjálfstæðisflokksins, Geir Haarde, nýtur stuðnings um 32% meðan flokkurinn fær um 35%.  Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna nýtur trausts tæplega 26% kjósenda en flokkurinn fær um 23%.  Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, leiðtogi Samfylkingarinnar, nýtur trausts um 12% kjósenda en flokkurinn fær um 28% fylgi.

Þegar stuðningur og traust á stjórnmálaleiðtogunum er skoðað og sömuleiðis hverjum þeirra fólk vantreystir mest, þá kemur upp úr dúrnum að Steingrímur J. Sigfússon er óumdeildastur, hann er í öðru sæti yfir þá sem mest trausts njóta og kemst ekki á blað yfir þá sem fólk vantreystir. Rúm 27% vantreysta Ingibjörgu, tæp 12% vantreysta Geir og rúm 8% vantreysta Birni Bjarnasyni.

Þessi niðurstaða staðfestir að málefni Vinstri grænna njóta víðtæks stuðnings og trúverðugleiki forystunnar er mikill.  Í því liggja heilmikil sóknarfæri.  Þjóðin treystir Steingrími J. augljósa best til að leiða ríkisstjórn ef frá er talinn núverandi forsætisráðherra.  Sérstaklega er athyglisvert að Steingrímur nýtur mikils trausts kvenna - athyglisvert ekki síst í ljósi ákveðinnar umræðu um jafnréttishugsjónir stjórnmálaleiðtoganna.  Smile


mbl.is Flestir treysta Geir af stjórnmálaleiðtogunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband