Áframhaldandi hernaðarstefna á "vitrænum forsendum"

Helsti talsmaður Samfylkingarinnar í utanríkismálum, varaformaður utanríkismálanefndar Alþingis, ritar grein í Morgunblaðið í dag þar sem hann útskýrir stefnubreytingu flokks síns í utanríkismálum.  Þar má skilja, að nú þegar flokkurinn er kominn í ríkisstjórn verði að taka á utanríkis- og varnarmálum á "vitrænum forsendum". 

Og hverjar eru hinar "vitrænu forsendur"?  Jú, það er óbreytt hernaðarstefna, áframhaldandi stuðningur íslenskra stjórnvalda við innrásarstríð í Írak, hernaðarbrölt í Afganistan og þannig má vafalaust áfram telja.  Hefur hann uppi allmörg orð um það að friðarstefna Vinstri grænna sé ekki háð á "vitrænum forsendum" - og hvað er þá orðið að málflutningi og baráttu margra góðra hernaðarandstæðinga og friðarsinna sem störfuðu í Alþýðubandalaginu og Kvennalistanum á sinni tíð?  Hvert hafa örlögin leitt það ágæta fólk í sameiningunni við Alþýðuflokkinn?

Blasir ekki við að það er gamla heimsvaldastefnan, hernaðarhyggjan og undirgefni við Bandaríkjastjórn, sem var aðalsmerki Alþýðuflokksins, sem hefur orðið ofan á innan Samfylkingarinnar?  Og þá stefnu er talsmaðurinn að verja í Morgunblaðsgreininni.  Sú stefna sem flokkurinn fylgir nú, var að vísu ekki svo einbeitt og augljós í aðdraganda kosninga og meðan flokkurinn var í stjórnarandstöðu.  Háværar kröfur forystumanna flokksins um uppgjör vegna Írak eru að engu orðnar og hafa dáið drottni sínum.

Það er hins vegar vita gagnslaus málsvörn hjá nafna mínum að ætla að útskýra stefnubreytingu Samfylkingarinnar með því að draga fram Norðmenn og Dani sem skálkaskjól.  Það hefur engin stefnubreyting orðið hjá íslenskum stjórnvöldum við ríkisstjórnarskiptin, eins og kjósendum var lofað að yrði ef Samfylkingin kæmist í ríkisstjórn, og það leyfum við okkur í VG að gagnrýna.  Stjórnarflokkur verður að þola það að vera minntur á kosningaloforðin og þegar þau eru að engu höfð er ekki við neinn að sakast nema hann sjálfan.  En sannleikanum verður hver sárreiðastur, eins og sést glöggt á málsvörn varaformanns utanríkismálanefndar í Morgunblaðinu í dag.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: AK-72

Sæll,

 er hægt að nálgast þessa grein á netinu eða geturðu sett hana inn fyrir okkur sem hafa ekki tök á að komast í Moggann.?

Kveðja,

 AK

AK-72, 23.8.2007 kl. 15:29

2 Smámynd: María Kristjánsdóttir

 

 Þetta er greinin. Fyrirsögnin Að styðja Hamas en fordæma Norðmenn . Vona að þetta sé leyfilegt - en ekki algjör lögleysa :

Í SÍÐUSTU viku stóð yfir heræfing

hér á landi. Slíkar æfingar eru

nauðsynlegar til að æfa viðbúnað við

hættuástandi. Í æfingunni nú var

áberandi þáttur Norðmanna og

Dana. Sá þáttur er

bein afleiðing aukins

samstarfs okkar við

þessa næstu nágranna

okkar í öryggis- og

varnarmálum, í kjölfar

þess að bandarískt

varnarlið hvarf frá

Keflavík.

Það vakti því nokkra

athygli að sjá formann,

þingflokksformann og

aðra þingmenn Vinstri

grænna taka sér mótmælastöðu

fyrir utan

sendiráð Norðmanna

og Dana hér á landi. Systurflokkur

VG er í ríkisstjórn í Noregi og hefur

því yfir herliði því sem hér var við

æfingar að segja. Að sögn formanns

Vinstri grænna var ástæða mótmælanna

fyrst og fremst andstaða VG

gegn ofbeldi.

Er sjálfsvörn

sama og árás?

Markmið heræfinganna var að

æfa viðbrögð við hættuástandi. Í

þetta sinn voru æfð viðbrögð við

hryðjuverkum en áður hafa m.a. verið

æfð viðbrögð við stórfelldum náttúruhamförum.

Það er ekki alveg

ljóst í mínum huga hvort óbeit VG á

ofbeldi er slík að þeir geti ekki hugsað

sér að vopnavaldi sé beitt til að

frelsa gísla úr haldi, svo dæmi sé

tekið. Má sérsveit lögreglunnar þá

ekki beita vopnum til að fást við

vopnað fólk? Má lögreglan þá ekki

beita valdi til að handjárna menn?

Hér voru einungis æfð viðbrögð við

hryðjuverkum á borð við lausn á

gíslatöku. Af hverju má ekki frelsa

gísla með vopnavaldi? Gerir VG engan

greinarmun á valdbeitingu opinberra

aðila til að halda uppi lögum

og reglu og ofbeldisárás? Treystir

Steingrímur ekki

flokkssystkinum sínum

í Noregi til að hafa lýðræðislega

stjórn á

norskum herafla?

Þessi djúpstæða

óbeit VG á ofbeldi vekur

ýmsar fleiri spurningar.

Forysta VG

hafði stór orð í garð

Ingibjargar Sólrúnar

Gísladóttur utanríkisráðherra

í sumar, í

kjölfar þeirrar ákvörðunar

hennar að hitta

ekki að máli fulltrúa

Hamas í heimsókn sinni til Palestínu.

Ástæðan var að heimsókn utanríkisráðherra

var farin rétt í kjölfar

vopnaðs valdaráns Hamas á Gazasvæðinu

og fundur utanríkisráðherra

með fulltrúum þeirra á

þessum tímapunkti hefði falið í sér

óbeina viðurkenningu Íslands á beitingu

ofbeldis af þeirra hálfu. Í ljósi

þessa getur maður því ekki annað en

spurt hvort óbeit Vinstri grænna á

ofbeldi sé bara til innanlandsbrúks.

Ný tækifæri –

ætlar VG að sitja hjá?

Við viljum flest berjast gegn ofbeldi

en við hljótum einnig að áskilja

okkur rétt til þess að halda uppi lögum

og reglu og verja rétt okkar til

stjórnarfarslegs sjálfstæðis og yfirráða

yfir íslensku landsvæði. Með

brottför varnarliðsins frá Keflavík

opnuðust ný tækifæri fyrir okkur

sem þjóð til að móta öryggismálastefnu

út frá íslenskum hagsmunum

í samstarfi við okkar nánustu

bandamenn. Í því efni er

mikilvægast að við tryggjum að

fylgst sé með umferð yfir landinu og

að við eigum aðgang að aðstoð frá

nánustu bandamönnum okkar til að

bregðast við óvæntum aðstæðum á

borð við stórfelldar náttúrhamfarir,

umhverfisslys eða hryðjuverk. Það

er sérstaklega æskilegt að efla samstarf

við Norðmenn og Dani í þessum

efnum í stað þess að byggja öryggisviðbúnað

okkar alfarið á

samstarfi við Bandaríkjamenn, sem

oft eiga annars konar hagsmuni að

verja á alþjóðavísu en við.

Núna gefst einstakt tækifæri til

nýsköpunar í stefnumótun um öryggis-

og varnarmál. Það er

áhyggjuefni ef forysta VG ætlar að

dæma sig úr leik í þeirri umræðu og

halda sig á gamalkunnum slóðum í

heimi mótmælaslagsmála og innantómra

orðaleppa. Flokkur sem vill

láta taka sig alvarlega verður að

vera til viðræðu um öryggis- og

varnarmál á vitrænum forsendum.

Það hefur systurflokki VG í Noregi

tekist ágætlega. Hvað dvelur Steingrím?

Árni Páll Árnason

María Kristjánsdóttir, 23.8.2007 kl. 18:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband