Einkavæðing Orkuveitunnar yfirvofandi

Meirihluti borgarstjórnar hyggst óska eftir því að iðnaðarráðherra beiti sér fyrir því að lögum um Orkuveitu Reykjavíkur verði breytt í hlutafélag.  Eðlilegri beiðni minnihlutans í stjórn Orkuveitunnar um að fresta málinu var hafnað af meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks og sýnir það best einbeittan ásetning flokkanna um að einkavæða fyrirtækið.

Borgarstjórinn í Reykjavík, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, hefur margsinnis lýst því yfir í borgarstjórn og á öðrum opinberum vettvangi að ekki standi til að einkavæða Orkuveitu Reykjavíkur.  Breyting á opinberu fyrirtæki í hlutafélag hefur þó ævinlega verið undanfari einkavæðingar.  Fulltrúar Vinstri grænna, Samfylkingar og F-listans í borgarstjórn hafa á hinn bóginn gefið lítið fyrir yfirlýsingar borgarstjóra og haldið því fram að ásetningur meirihlutans sé að einkavæða fyrirtækið.

Hvað rekur meirihlutann í borgarstjórn til að fara fram með þessum hætti?  Hefur borgarstjóri tryggingu fyrir því að iðnaðarráðherra muni flytja frumvarp um breytingu á rekstrarformi Orkuveitunnar?  Því verður ekki trúað.  Ljóst er því að borgarstjóri er að taka ótrúlega pólitíska áhættu í málinu sem mun einungis verða til þess að veikja ennfrekar stöðu hans.

Fulltrúar Vinstri grænna og Samfylkingar hafa ákveðið að fara fram á umræðu um málið á næsta fundi borgarstjórnar sem fram fer nk. þriðjudag.  Meirihlutinn í borgarstjórn virðist ætla að keyra þetta mál í ágreiningsferli sem fyrst og fremst mun skaða Orkuveituna, og að sjálfsögðu pólitíska stöðu oddvita meirihlutans.  Það er hans val.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Viktor Úlfarsson

OR er nú sameignarfélag (sf.).

Úr 2. gr. laga um sameignarfélög 50/2007: "...þar sem allir félagsmenn bera beina, óskipta og ótakmarkaða ábyrgð á skuldbindingum félagsins."

Það eru tvær meginástæður fyrir því að mikilvægt er að gera OR að hlutafélagi:

a) OR er nú sameignarfélag (sf.).  Það þýðir að allir eigendur bera jafna og ótakmarkaða ábyrgð burtséð frá eignarhlut s.b. tilvitnun hér að ofan.  Það þýðir að Borgarbyggð sem á 1% ber jafnmikla ábyrgð og Reykjavíkurborg sem á 94%.  Sem aftur veldur því að fulltrúar í stjórn Borgarbyggðar hafa neitunarvald varðandi allar framkvæmdir OR þrátt fyrir að eiga bara 1% í félaginu.  Ef Borgarbyggð vildi setja pressu á Reykjavíkurborg vegna einhvers máls gæti sveitarfélagið hæglega gert það í gegnum eignarhlut þess í OR og hreinlega stöðvað skuldbindingar OR þangað til Reykjavíkurborg gerði það sem Borgarbyggð vildi.  Þetta er möguleiki nú meðan OR er sameignarfélag.

Í hlutafélagi er vægi atkvæða í jöfnu hlutfalli við eign í fyrirtækinu.

b) Í sameignarfyrirtæki bera allir eigendur fulla ábyrgð á öllum skuldbindingum félagsins.  Í hlutafélagi er ekki hægt að ganga að eigendum þótt félagið skuldbindi sig og standi síðan ekki í skilum. 

Þetta þýðir að þegar OR tekur milljarða króna lán t.d. til virkjanagerðar, gangast eigendur sameignarfélags í ábyrgð fyrir lánin að fullu og það er hægt að ganga að þeim sé ekki til fyrir lánunum.  Í hlutafélagi bera eigendur (sveitarfélögin og íbúar þeirra) ekki þessa ábyrgð heldur fyrirtækið sjálft.  Fari fyrirtækið á hausinn er ekki hægt að ganga að eigendunum.

Það er því mjög jákvætt skref fyrir fyrirtækið og eigendur þess að breyta OR í hlutafélag.

Það er síðan allt önnur umræða og allt annað mál hvort skipta eigi um eigendur fyrirtækisins.

Sigurður Viktor Úlfarsson, 30.8.2007 kl. 22:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband