7.5.2007 | 16:56
Skemmtilegur fundur í Brimborg
Í hádeginu í dag var efnt til almenns stjórnmálafundar í bifreiðaumboðinu Brimborg. Þetta var skemmtilegt frumkvæði hjá fyrirtækinu að bjóða fulltrúum allra framboða að koma og ræða um samgöngumál og málefni bílgreina. Matsalurinn var þétt setinn og stemningin góð.
Þarna mætti ég fyrir hönd Vinstri grænna en aðrir frambjóðendur voru Össur Skarphéðinsson (S), Birgir Ármannsson (D), Jónína Bjartmarz (B), Magnús Þór Hafsteinsson (F) og Ómar Ragnarsson (I). Mikið var rætt um samgöngumálin hér á höfuðborgarsvæðinu, Sundabrautina vitaskuld, Suðurlandsveg o.fl. Umræðurnar snérust m.a. um fjármögnun, skattlagningu og syndaregistur ríkisstjórnarinnar í samgöngumálum höfuðborgarsvæðisins.
Birgir og Jónína voru í nokkurri vörn fyrir hönd stjórnarinnar, einkum Birgir, en Össur sótti hart að stjórnarflokkunum (var samt ekki alltaf mjög málefnalegur). Ómar lét móðann másan og fór á flug eins og honum er lagið, talaði um lengdar- og breiddargjöld á bíla.
Af minni hálfu kom fram mikilvægi þess að skoða samgöngumálin í samhengi við umhverfismál, draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, auka almenningssamgöngur og breyta skattlagningu bíla þannig að hún samræmist betur markmiðum í umhverfis- og umferðaröryggismálum.
Sem sagt, skemmtilegur fundur í Brimborg og vona að starfsfólkið þar hafi haft gagn og gaman að.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Takk fyrir Árni.
Egill Jóhannsson, 8.5.2007 kl. 07:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.