21.8.2007 | 19:31
„Þetta er herinn sem byssustingjum beinir að….
börnum og konum og vopnlausum lýð segir í þekktu ljóði Kristjáns Guðlaugssonar. Þar yrkir hann um bandaríska herinn á Miðnesheiði, og margir hernaðarandstæðingar hafa í gegnum árin tekið undir og borið fram kröfuna um herlaust land, afvopnun og frið. Sumir þeirra eru nú, illu heilli, í herbúðum stjórnarliða og hljóta að vera hnípnir mjög þegar forysta þeirra býður velkominn hingað heim innrásarherinn frá Írak.
Því það er einmitt það sem er að gerast. Hingað í heræfingarleiðangur, svokallaðan Norðurvíking, er boðið þeim sama her og stendur í ólögmætum stríðsrekstri í Írak og sem kostað hefur borgarastyrjöld og ómældan fjölda fórnarlamba, ekki síst meðal óbreyttra borgara. Sú ríkisstjórn sem nú situr að völdum harmaði af stórlyndi sínu stríðsreksturinn í Írak, rétt eins og einhverjir væru bættir með því. En forysta íslenskra jafnaðarmanna auðmýkti sjálfa sig með því að setjast í ríkisstjórn án þess að krefjast þess að stjórnvöld bæðust afsökunar á athæfi sínu og skilmálalausum stuðningi við ólögmætar aðgerðir Bandaríkjastjórnar og fleiri ríkja í Írak. Voru stóryrðin og svardagarnir fyrir kosningar þá eingöngu sjónhverfingar til þess eins að ganga í augun á kjósendum? Sjaldan hefur eins lítið lagst fyrir nokkurn kappa og forystu Samfylkingarinnar þar sem hún reynir nú að fóta sig á svelli utanríkis- og varnarmála.
En ríkisstjórn Íslands telur rétt að halda áfram á sömu braut hernaðarstefnu eins og flestar fyrri ríkisstjórnir, enda stýrir Sjálfstæðisflokkurinn för einn ganginn enn. Sem fyrr velur samstarfsflokkur hans að beygja sig í duftið og fylgja leiðsögn hægri aflanna, hernaðarhyggju og undirlægjuháttar gagnvart Bandaríkjunum. Verður það ef til vill erindi okkar í Miðausturlöndum og í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna? Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar býður velkominn þann sama her og réðst með ólögmætum hætti inn í Írak, þann sama her og beinir byssustingjum að börnum og konum og vopnlausum lýð í þeirri barnslegu trú að slíkur her geti reynst þjóðinni vörn á válegri tíð. Væri ef til vill ráð að spyrja almenning í Írak um varnarmátt þeirra vígtóla sem orðið hafa þúsundum að fjörtjóni þar og svo miklu víðar.
Þegar bandaríski herinn hvarf af landi brott bárum við mörg í brjósti þá von að orð Jakobínu skáldkonu Sigurðardóttur yrðu að áhrínsorðum og að börn okkar gætu án kinnroða nefnt okkar kynslóð og kletta og heiðar og sand. En þvert á móti veldur framganga íslenskra ráðamanna nú því að þau verða hugstæðari orðin Jakobínu úr sama ljóði: En smánin í blóði mér brennur. Þú veist hvað sá heitir sem bregst sínu landi og þjóð. Vonandi sér stjórnarforystan að sér áður en svo illa er komið.
(Greinin birtist í Morgunblaðinu sunnudaginn 19. ágúst).
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:32 | Facebook
Athugasemdir
Vel að orði komist nafni minn.
Því miður hafa margir íslenskir stjórnmálamenn ekki vaxið til meiri stærðar en þeirrar sem birtist í yfirlýsingunni alkunnu:--Mín upphefð kemur að utan!
Árni Gunnarsson, 22.8.2007 kl. 12:00
Tónfallið er mér líka vel að skapi.
Lengi lifir í gömlum glæðum:
Ásgeir Rúnar Helgason, 22.8.2007 kl. 20:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.