18.11.2008 | 23:04
Ekki bend'á mig!
Hvað er hvers og hvers er hvað og hvernig á að vita það?
Nú keppast ráðamenn og embættismenn við að benda hver á annan. Enginn vill axla ábyrgð á bankahruninu og efnahagskreppunni sem fylgdi í kjölfarið. Seðlabankinn bendir á bankana, Fjármálaeftirlitið og ríkisstjórnina. Fjármálaeftirlitið bendir á Seðlabankann, bankana og stjórnvöld. Ríkisstjórnin bendir á Seðlabankann og Fjármálaeftirlitið (þ.e.a.s. Samfylkingin bendir á Seðlabankann og Sjálfstæðisflokkur á Fjármálaeftirlitið - takið eftir að flokkarnir passa hvor upp á sitt lið!).
Farsinn er fullkominn. Einu afsagnirnar koma úr röðum Framsóknarflokksins. Og situr þó enn sem fastast bankamálaráðherra þess flokks sem einkavæddi bankana. Alls kyns glósur ganga á milli stjórnarflokkanna og einstakra ráðherra. Jafnvel iðnaðarráðherra segir að það sé "mikill ábyrgðarhluti" af ríkisstjórninni og forystu hennar að halda áfram störfum með óbreytta stjórn í Seðlabankanum. Þessi ráðherra hlýtur annað hvort að knýja fram brottrekstur Seðlabankastjóra, ella segja af sér sjálfur til að forðast að burðast með þessa miklu ábyrgð til langrar framtíðar.
Vitaskuld bera allir þeir aðilar sem að málum hafa komið mikla ábyrgð. Stjórnendur bankanna sjálfra, stofnanir eins og Seðlabankinn og Fjármálaeftirlitið og síðast en ekki síst ríkisstjórnin sjálf. Henni mátti vera ljóst hvert stefndi og hún bar ábyrgð á því að gripið yrði til nauðsynlegra ráðstafana til að forðast afleiðingar bankahruns. Það var ekki gert, a.m.k. ekki tímanlega. Þess vegna er mikilvægt að allir þessr aðilar axli ábyrgð. Bankarnir hafa verið ríkisvæddir og settar yfir þá nýjar stjórnir, hið sama þarf að gera við Seðlabankann og Fjármálaeftirlitið (e.t.v. með samruna þessara stofnana) og svo þarf nýja ríkisstjórn með nýtt umboð kjósenda.
Þess vegna er að verða æ brýnna að gengið verði til kosninga sem fyrst svo þjóðin geti tekið ákvörðun um það í hvaða átt verður haldið við uppbyggingu og endurreisn íslensks samfélags.
6 fundir með seðlabankastjórn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Ég spyr þig eins og ég spurði Grétar Mar.
Hversvegna ber stjórnarandstaðan ekki upp vantrausttillögu á Ríkisstjórnina.
Það væri ekki svo galið hjá ykkur að sjá hverjir vilja hana frá,halda því vel til haga og nota svo í næstu kosningabaráttu..Látið þessa sprelligosa eins og Iðnaðarráðherrann taka afstöðu..
Grétar að sjálfsögðu jánkaði en gerði ekki neitt frekar en aðrir þingmenn í öllum öðrum málum
Gunnar Þór Ólafsson, 18.11.2008 kl. 23:24
Ísland. Aumingja Ísland!
Baldur Gautur Baldursson, 21.11.2008 kl. 10:58
Núna loksins er vantrausttillagan komin,ekki það að ég vænti þess að hún verði samþykkt heldur sést þá hverjir styðja hana..
Það verður erfitt fyrir Ágúst,Helga,Umhverfis,Viðskipa,og einhverja fleiri sem ég bara nenni ekki að muna hvað heita að gera grein fyrir atkvæði sínu..HA Ha ég hlakka til að sjá útsendinguna frá kosningunni.
Gallinn er nefnilega sá Árni, að þið þingmenn eruð ekki af hugsjón þarna heldur fyrir launin og athyglina...
Gunnar Þór Ólafsson, 21.11.2008 kl. 20:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.