21.5.2009 | 21:29
Norræn samvinna í utanríkis- og öryggismálum
Í næstu viku kemur hingað til lands Thorvald Stoltenberg, fyrrv. utanríkisráðherra Noregs, til að fjalla um norræna samvinnu á sviði utanríkis- og öryggismála. Stoltenberg er þrautreyndur stjórnmálamaður og diplómat og var um langt skeið í forystusveit norska Verkamannaflokksins. Hann hefur að undanförnu unnið á vegum utanríkisráðherra Norðurlandanna að skýrslu og tillögum um aukna samvinnu Norðurlandanna.
Stoltenberg kynnti norrænu utanríkisráðherrunum skýrslu sína í febrúar sl. og fékk hún umfjöllun, m.a. á vettvangi utanríkismálanefndar Alþingis. Hefur tillögum hans yfirleitt verið vel tekið þótt einstaka tillögur eigi varla við hér á landi. Að mínu mati felst í tillögunum viðleitni til að taka utanríkis- og öryggismálin nýjum tökum, auka norræna samvinnu á því sviði og víkka sjónarhornið á öryggismál. Það er mjög jákvætt og í anda þess málflutnings sem vinstri menn og friðarsinnar hafa lengi haldið á lofti. Það felast því mörg tækifæri í þeirri nýju sýn sem Stoltenberg fjallar um.
Fyrirlestur Stoltenbergs verður í Háskóla Íslands nk. miðvikudag (27. maí) kl. 12.15.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.