Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
20.10.2007 | 16:41
Kærleikurinn umber ALLT - tækifæri kirkjunnar
Kirkuþing stendur nú yfir. Samkvæmt fréttum og m.a. því sem haft er eftir biskupi, munu málefni samkynhneigðra verða talsvert til umræðu. Hin íslenska þjóðkirkja hefur fram að þessu streist á móti því að vígja samkynhneigt fólk í hjónaband eins og gagnkynhneigt.
Það var fróðlegt málþing haldið í Þjóminjasafninu í gær um þessi málefni og mörg áhugaverð erindi flutt. Fjarvera biskups og helstu forvígismanna kirkjunnar var æpandi. En sem betur fer eru starfandi innan þjóðkirkjunnar margir prestar sem láta sig málefni samkynhneigðra varða og vilja að kirkjan sýni kærleik sinn í verki og mæti samkynhneigðu fólki á sama grundvelli og öðrum einstaklingum. Þeir eiga heiður og hrós skilið fyrir framsýni, réttsýni og kjark.
Kolbrún Halldórsdóttir þingmaður Vinstri grænna, hefur ásamt þingmönnum úr tveimur öðrum stjórnmálaflokkum, lagt fram frumvarp á Alþingi sem gerir ráð fyrir að í landinu gildi ein hjúskaparlög, þar sem hjónaband verði skilgreint sem hjúskapur tveggja einstaklinga (án kyngreiningar). Í því felst mikil réttarbót en umfram allt snýst það um jafnrétti. Að tveir einstaklingar geti stofnað til hjónabands ef þeir svo kjósa og það eigi bæði við um hjónaband karls og konu en einnig um hjónaband einstaklinga af sama kyni.
Grundvöllur kristinnar trúar er kærleikurinn. Þjóðkirkja sem snýr baki við tilteknum hluta þjóðarinnar og treystir sér ekki til að horfa á alla þegna sína jafnt, heldur vill mismuna þeim, getur ekki staðið undir nafni sem þjóðkirkja. Í fyrra bréfi Páls til Korintumanna standa þau fleygu orð sem ég vísa til í fyrirsögninni um kærleikann: "Hann ... umber allt. Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi." [1. Kor. 13:7]
Þjóðkirkjan hefur nú tækifæri á yfirstandandi kirkjuþingi til að sýna í verki að hún umberi allt líkt og kærleikurinn. Mun hún grípa það tækifæri - eða missa það úr höndum sér?
19.10.2007 | 20:27
Geysir Green geysist áfram - veruleikafirring?
Útvarpið ræddi við forstjóra Geysis Green Energy í fréttum í kvöld. Þar kemur fram að forstjórinn telur að skipun stýrihóps um orkumál, framtíð og hlutverk Orkuveitunnar, og síðustu atburði varðandi sameiningu REI og GGE, breyti engu. Atburði sem almenningi í borginni blöskrar og sem felldi meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í borgarstjórn Reykjavíkur.
Er engu líkara en forstjóri GGE hafi enga tilfinningu fyrir þeirri umræðu sem hefur átt sér í samfélaginu eða sé algerlega ónæmur fyrir gagnrýni. Auðvitað verður forstjórinn að átta sig á því að hinn meinti ólögmæti eigendafundur í REI 3. október gat varla skuldbundið borgarbúa. Þeir sem áttu hlut að þeim fundi hafa nú flestir viðurkennt að þar hafi ekki verið staðið rétt að málum og það þurfi að endurskoða málin frá grunni. Ætlar forstjóri GGE að hunsa þau viðhorf? Starfar forstjórinn á eigin vegum eða í umboði eigenda? Væri ekki rétt hjá forstjóranum að taka mið af því sem þeir sem fara með stjórn borgarinnar eru að segja? Eða eru viðbrögð forstjórans enn eitt dæmið um það sem kalla mætti veruleikafirringu stjórnendanna í REI/GGE-málinu?
Stjórnmál og samfélag | Breytt 20.10.2007 kl. 16:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
18.10.2007 | 22:24
Hver er launakostnaður yfirstjórnar Ríkisútvarpsins?
Á Alþingi nú í kvöld var lögð fram fyrirspurn mín til menntamálaráðherra um stjórnunarkostnað hjá Ríkisútvarpinu ohf. Fyrirspurnin er þannig:
1. Hver er launakostnaður vegna útvarpsstjóra Ríkisútvarpsins ohf. nú og hver var sambærilegur kostnaður fyrir ári síðan?
2. Hver er þóknun formanns og annarra stjórnarmanna í Ríkisútvarpinu ohf. nú og hver var þóknun fulltrúa í útvarpsráði fyrir ári síðan?
3. Hver er kostnaður við yfirstjórn Ríkisútvarpsins ohf. og hver var hann fyrir ári síðan?
4. Hefur launakostnaður almennra starfsmanna breyst hlutfallslega eins og launakostnaður útvarpsstjóra?
Á þessari stundu er ekki ljóst hvenær ráðherrann mun svara fyrirspurninni en vonandi verður þess ekki langt að bíða.
12.10.2007 | 16:11
Tjarnarkvartettinn - til hamingju
Nýr meirihluti tekur við í borgarstjórn Reykjavíkur á þriðjudag. Það eru vissulega mikil tíðindi, og góð, að samstaða hafi náðst um nýjan meirihluta sem byggir á félagshyggju, almannahagsmunum, m.a. í orkumálum, lýðræði og umhverfisvernd. Þessi meirihluti hefur á bak við sig atkvæði rúmlega 57% borgarbúa, meðan fráfarandi meirihluti hlaut aðeins stuðning 49% í síðustu borgarstjórnarkosningum. Það mátti því draga í efa að þar væri raunverulegur meirihluti á ferðinni.
Við þessi einstæðu tíðindi í borgarstjórn, ganga svikabrigslin á víxl. Borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, sem hefur verið í samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn í 16 mánuði, segir andrúmsloftið innan þess flokks hafa verið óbærilegt og það hafi ekkert annað verið í stöðunni en að slíta meirihlutasamstarfinu. Líklega eru ástæður flokkadráttanna í Sjálfstæðisflokknum afar djúpstæðar og teygja sig inn í raðir æðstu forystunnar. Það vekur vissulega athygli að borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins hafi ekki verið reiðubúinn að standa við bakið á borgarstjóra sínum, heldur fórna honum í raun með opinberum fundahöldum með forystu flokksins, án borgarstjóra. Þetta eru ekki sannfærandi vinnubrögð og von að Framsóknarflokknum hafi ekki þótt þau á vetur setjandi.
Samstarf félagshyggjufólks í borginni árin 1994-2006 var farsælt. Þar kom saman fólk úr ýmsum flokkum og óháðir einstaklingar einnig. Nú tekur við störfum nýr meirihluti á öðrum grunni en grundvallarhugsjónirnar eru eftir sem áður félagshyggjan og almannahagsmunir, velferð, lýðræði og mannréttindi, umhverfisvernd og virðing fyrir náttúrunni. Það eru ánægjuleg tíðindi og vonandi verður boltinn frá Reykjavík látinn rúlla víðar.
Engum blöðum er um það að fletta að framganga Svandísar Svavarsdóttur, oddvita Vinstri grænna í borgarstjórn, hefur skipt sköpum í þeirri atburðarás sem við höfum fylgst með undanfarið. Hún hefur sýnt og sannað að þar fer sterkur leiðtogi sem talar frá hjartanu og í takt við almenning í borginni. Pólitísk sannfæring hennar og kjarkur hefur nú skilað nýjum meirihluta í borgarstjórn. Enginn einn einstaklingur á jafn mikinn þátt í þessum tíðindum og Svandís, þótt vissulega hafi fleiri komið að málum á ýmsum stigum. Hún hefur áunnið sér traust og virðingu borgarbúa og ég er sannfærður um að í þeim vandasömum störfum sem bíða, mun hún bara vaxa enn frekar. Henni og samstarfsfólki hennar í borgarstjórn fylgja árnaðar- og baráttukveðjur.
![]() |
Björn Ingi: Það var ekkert annað að gera í stöðunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.10.2007 | 16:51
Undanhaldið hafið
Ríkisútvarpið hefur greint frá því að stjórn Reykjavík Energy Investment hafi ákveðið að öllum starfsmönnum verði nú gefið færi á að kaupa hlut í fyrirtækinu á sama gengi. Það er augljóst að kaupréttarsamningarnir sem voru gerðir við fyrirmennin þola ekki dagsljósið og því hefur stjórnin ákveðið að hopa.
Undanhaldið í þessu hneykslismáli er hafið. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins ná ekki upp í nefið á sér og vilja bersýnilega ekki bera ábyrgð á því pólitíska drullumalli sem hér er á ferðinni. Og Björn Bjarnason leggur þeim lið. Vafalaust munu helstu fjármálagúrúar landsins telja þetta stærsta viðskiptasamning Íslandssögunnar og þeir sem eru bak við tjöldin fagna sigri - það skyldi aldrei fara svo að það verði Pýrrhosarsigur græðgisaflanna sem vilja komast yfir eignir þjóðarinnar fyrir slikk?
Svandís Svavarsdóttir borgarfulltrúi Vinstri grænna heldur uppi málstað borgarbúa og landsmanna allra í þessu máli. Hún hefur fengið geysilega mikinn stuðning hvaðanæva að, langt út fyrir raðir síns eigin flokks. Fólki blöskrar og það setur nú traust sitt á hana. Hún stendur sannarlega undir því. Fyrir utan hneykslið með kaupréttarsamningana var fundurinn sem ákvað sameiningu Reykjavik Energy Investment og Geysir Green Energy kolólöglegur og ákvörðun hans um sameiningu þar með einnig. Og á það verður látið reyna. Það er ekki hægt að horfa hnípinn upp á fjármagnseigendur í landinu hirða eignir almennings í þágu eigin gróða. Nú verður spyrnt við fótum!
![]() |
Finnur fyrir mikilli reiði í samfélaginu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.10.2007 | 18:12
Handarbakavinnubrögðin halda áfram
Meirihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur boðar til fundar til að sameina Reykjavik Energy Invest, sem er í eigu Orkuveitunnar o.fl. og Geysir Green Energy. Fundurinn var boðaður með nokkurra klukkustunda fyrirvara þótt skyld sé að boða eigendafund í OR með 7 daga fyrirvara samkvæmt samþykktum.
Lýðræðisleg vinnubrögð eru að engu höfð, enda liggur þessu liði á að koma sem mestu af samfélagslegum eignum í hendum einkaaðila. Þeir vilja ekki lýðræðislega umræðu, gefa kjörnum fulltrúum ekki kost á að kynna sér málin. Þetta eru sömu vinnubrögðin og varðandi breytingu Orkuveitunnar í hlutafélag og söluna á hlut borgarinnar í Landsvirkjun.
Er engu líkara en þeir sem ráða ferðinni í borgarstjórn líti svo á að þetta séu persónulegar eignir þeirra sem þeir geti farið með að vild. Það er stundum sagt að valdið spilli. Það hefur tekið ótrúlega stuttan tíma hjá núverandi valdhöfum í Reykjavík að láta það sannast. Hagsmunir borgarbúa eru að engu hafðir í þágu pólitískra markmiða um einkavæðingu orkuauðlinda. Mér virðist þetta vera eitthvað það ljótasta sem maður hefur séð í íslenskum stjórnmálum um langa hríð.
![]() |
Bjarni verður stjórnarformaður sameinaðs félags |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.10.2007 | 17:45
Tekist á um stefnuræðu
1.10.2007 | 08:23
Vinstri græn styrkja sig við upphaf þings
Ný skoðanakönnun Fréttablaðsins bendir til þess að við Vinstri græn séum að styrkja stöðu okkar, nú í upphafi þings. Staða stjórnarflokkanna tveggja er vissulega sterk, en við þær aðstæður er sérlega mikilvægt að stjórnarandstaðan sé öflug og kraftmikil, þótt fámenn sé.
Stjórnarndstaðan er órjúfanlegur hluti í virku lýðræði og því mikilvægt að vel sé búið að starfsaðstöðu hennar, ekki síst þegar haft er í huga að stjórnarmeirihlutinn hefur 12 ráðuneyti til að vinna fyrir sig, auk þess sem nefndarformenn (sem allir koma úr stjórnarliðinu) hafa ákveðið forskot á aðra þingmenn, þegar kemur að þjónustu þingsins við kjörna fulltrúa. Ýmsir þingmenn úr núverandi stjórnarflokkum, auk stjórnarandstöðuþingmanna, hafa lýst áhuga á því að jafna aðstöðu stjórnar og stjórnarandstöðu í þinginu og vonandi mun forseti Alþingis taka það mál föstum tökum.
Það er eftirtektarvert að stjórnmálaspekingar sem tjá sig um stöðu stjórnmálanna nú, telja að stjórnin sé svo sterk að hún muni engar áhyggjur þurfa að hafa og stjórnarandstaðan verði ekki til stórræða. Þetta má lesa bæði út úr viðbrögðum Einars Mar Þórðarsonar, sem tjáir sig um skoðanakönnun Fréttablaðsins, og Svanborgar Sigmarsdóttur sem ritar leiðara þess blaðs í dag. Með fullri virðingu fyrir þessum ágætu stjórnmálafræðingum (sem ég tel raunar almennt séð vanda að virðingu sinni sem ekki verður sagt um alla kollega þeirra) held ég að þetta séu fljótfærnislegar ályktanir sem þau draga. Það er að sjálfsögðu ekkert samhengi milli fjölda þingmanna í stjórn og/eða stjórnarandstöðu annars vegar og hins vegar hversu öflugur pólitískur málflutningur verður. Fullyrðingar Einars Mar um að það andi köldu milli VG og Framsóknar eru gamlar fréttir og eins og stjórnmálafræðingurinn sé enn fastur í kosninganótt. Vika er nefnilega langur tími í pólitík! Og að ímynda sér að sífelld upphlaup einstakra stjórnarliða sé merki um sterkt lýðræði eins og leiðarahöfundur gerir er sérkennilegt. Sannleikurinn er sá að það andar köldu innan stjórnarliðsins sem er líklegt til að grafa heldur undan samstarfsviljanum milli flokkanna. Og þá getur allt gerst. Stjórnmálafræðingarnir verða að gera betur í greiningu sinni á stöðunni.
Sú staðreynd að við Vinstri græn erum heldur í sókn, sýnir að áherslur okkar í vor og sumar hafa verið réttar og þær ná eyrum almennings. Við munum að sjálfsögðu halda áfram á sömu braut, hin pólitísku átök næstu mánuði og misseri munu að líkindum standa um hagstjórnina almennt, auðlindamál (bæði eignarhald og nýtingu, þmt. orkuauðlindanna), heilbrigðismál (þar sem einkavæðingarstefna Sjálfstæðisflokksins verður í hávegum höfð), umhverfismál (m.a. í tengslum við virkjanaáform í Þjórsá), byggðamál (þar sem ríkisstjórnin skilar algerlega auðu enn sem komið er) og áherslur Íslands í alþjóðamálum. Af miklu fleiru er að sjálfsögðu að taka, en líklega verða helstu átakalínurnar í þessum málaflokkum. Við Vinstri græn erum reiðubúin til að takast á við hægri sinnaða ríkisstjórn undir forystu Sjálfstæðisflokksins og munum hvergi draga af okkur.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.9.2007 | 20:45
Borgarstjórn kvödd
Ég hef nú endanlega sagt skilið við starfsvettvang minn til 13 ára, borgarstjórn Reykjavíkur. Það er vitaskuld ekki laust við að ég sé strax farinn að sakna þessa góða vinnustaðar, og ekki síst hinna fjölmörgu góðu félaga sem ég hef eignast á ferli mínum í borgarstjórn. En allt hefur sinn tíma, jafnvel seta í borgarstjórn. Á síðasta borgarstjórnarfundi mínum, flutti ég stutta kveðjuræðu, sem mér finnst við hæfi að birta hér:
Frú forseti, góðir borgarfulltrúar. Allt hefur sinn tíma og endi, jafnvel seta í Borgarstjórn Reykjavíkur. Fyrir liggur hér, eins og forseti hefur kynnt, bréf þar sem ég óska eftir lausn frá störfum borgarfulltrúa frá og með 1. október nk. þegar Alþingi kemur saman. Það er óneitanlega sérstök tilfinning fyrir mig að standa hér í borgarstjórn í síðasta sinn og kveðja starfsvettvang minn til rúmlega 13 ára. Það er sannast sagna drjúgur tími í starfsævi manns. Hér á vettvangi borgarstjórnar og borgarmálanna hef ég átt margar góðar stundir, bæði í meðbyr og mótbyr, eins og gengur í stjórnmálum. En umfram allt hefur þetta verið tími sköpunar og ánægju, það að fá að taka þátt í mótun samfélagsins er gæfa og ég tel mig afar lánsaman að hafa notið þeirrar gæfu. Reykjavíkurborg hefur tekið miklum breytingum á ekki lengri tíma. Margt hefur þróast í jákvæða átt, ég nefni sérstaklega uppbyggingu í leik- og grunnskólum, en á fjölmörgum öðrum sviðum hafa líka orðið stórstígar framfarir og þjónusta við borgarbúa aukist og batnað. Nýjar áherslur í skipulags- og umhverfismálum hafa rutt sér til rúms og áhugi borgarbúa á nánasta umhverfi sínu er til marks um vitundarvakningu sem meðal annars má rekja til hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar og alþjóðaskuldbindinga sem hér í Reykjavík birtist í Staðardagskrá 21, umhverfisstefnu Reykjavíkur. Sem betur fer bendir flest til þess að almenn pólitísk samstaða sé að skapast um þá þróun og það er vel. Það hefði ekki endilega þótt svo sjálfsagt fyrir um áratug síðan. En þótt margt þróist með jákvæðum hætti standa stjórnvöld og borgarbúar einnig frammi fyrir nýjum viðfangsefnum, ógnunum, sem sumir telja óhjákvæmilegan fylgifisk stórborga og þótt okkar samfélag sé ekki mannmargt, ber borgin einmitt mörg einkenni stórborgar. Þessi viðfangsefni verður borgarstjórn að taka alvarlega. Ofbeldi hvers konar, verslun með fólk, verslun með eiturlyf er eitthvað sem við eigum ekki að líða og í því efni verða allir að taka höndum saman. Það er að vísu risavaxið verkefni en á ekki að vera ofvaxið okkar samfélagi. Til þess þarf einfaldlega kjark og einbeitni sem ég vona að kjörnir fulltrúar í borgarstjórn búi yfir.
Frú forseti. Á þeim 13 árum sem ég hef starfað að borgarmálum hef ég kynnst og átt samleið með fjölda borgarbúa sem hefur verið afar gefandi og lærdómsríkt. Hið sama er að segja um samvinnu við starfsfólk og embættismenn borgarinnar en í því á borgin mikinn auð sem seint verður ofmetinn. Á þessum tímamótum vil ég þakka fyrir samstarf við borgarbúa og starfsfólk borgarinnar og ég vona að ég hafi komið að einhverjum notum við að gera gott samfélag betra. Þá er ótalið samstarfið innan borgarstjórnarinnar sjálfrar, samvinna og átök pólitískra keppinauta, milli flokka og innan flokka og flokkabandalaga. Gefandi og lýjandi á víxl eins og gengur en það eigum við þó öll sameiginlegt að vilja láta gott af okkur leiða, koma málum fram og ná sem víðtækastri samstöðu þar sem þess er kostur. En taka svo að sjálfsögðu slaginn þess á milli þegar ólíkt leiðarval gerir slíkt óhjákvæmilegt.
Í bróðerni vega þeir hvern annan og það á oft við um slaginn hér á hinum pólitíska vígvelli því þótt iðulega sé tekist harkalega á hefur einnig á þessum vettvangi skapast vinátta og traust, þvert á allar flokkslínur, sem er afar mikils virði. Ég vil þakka samstarfið við alla borgarfulltrúar, bæði þá sem sitja í þessum sal nú og alla aðra sem ég hef starfað með á liðnum árum, skiptir engu hvort það hafi verið keppinautar eða samherjar í meirihlutasamstarfi. Þá þekkingu, reynslu og vináttu sem ég hef áunnið mér undanfarin 13 ár í borgarstjórn mun ég hafa með mér í farteskinu í störfum á nýjum vettvangi þar sem ég mun þó leggja mig fram um að þjóna hagsmunum Reykvíkinga eins og annarra landsmanna. Borgarfulltrúum óska ég velfarnaðar í mikilvægum störfum sínum. Með þeim orðum, frú forseti, segi ég takk fyrir mig.
27.9.2007 | 08:53
Morgunblaðið boðar einkavæðingu auðlinda
LÍTIÐ opið bréf Ögmundar Jónassonar til formanna ríkisstjórnarflokkanna, sem birtist í Morgunblaðinu á þriðjudag, tendrar kveikjuþráðinn í leiðarahöfundi blaðsins. Það er eftirfarandi klausa í bréfi Ögmundar sem Morgunblaðið vitnar sérstaklega til: Ætlið þið að láta óátalið að þjóðin verði svipt orkulindunum? Eða ætlið þið að bregðast við með lagasetningu, sem tryggir eignarhald þjóðarinnar á auðlindunum og að grunnþjónusta verði ekki færð einkafyrirtækjum í einokunaraðstöðu? Ábyrgð ykkar er mikil.
Hvað er það í þessu sem leiðarahöfundur Morgunblaðsins lætur fara í taugarnar á sér? Jú, það er augljóst. Morgunblaðið vill og boðar nú einkavæðingu orkuauðlinda og vísar meðal annars til þróunar í sjávarútvegi. Um þetta munu hin pólitísku átök snúast. Vill þjóðin eiga auðlindirnar sínar sjálf og ákveða ráðstöfun þeirra og nýtingu eða vill hún að einkaaðilar, sem tímabundið fá nýtingarrétt á auðlindunum, geti eignast þær og svipt þannig þjóðina einni mikilvægustu sameign sinni?
Morgunblaðið hefur skipað sér í sveit með frjálshyggjustefnunni og Sjálfstæðisflokknum. Það er ekki nýtt. En félagshyggjuöflin hljóta að berjast fyrir sameign þjóðarinnar á auðlindunum og gegn því að arðránið í sjávarútvegi verði endurtekið í orkuauðlindunum. Vinstrihreyfingin grænt framboð mun að minnsta kosti standa vörð um þau gildi hvað sem líður frýjunarorðum Morgunblaðsins. Og það kemur ekki í veg fyrir að íslensk fyrirtæki taki þátt í verkefnum erlendis á sviði orkumála og er algerlega óskylt eignarhaldi á íslenskum orkuauðlindum.
Viðhorf Vinstri grænna eru ekki gömul og úrelt eins og skrifað stendur í leiðara Morgunblaðsins. Þvert á móti. Arðránsstefnan, sem blaðið ásamt Sjálfstæðisflokknum boðar, átti sitt blómaskeið á 19. öld og væri nær að kalla hana úrelta, ef menn á annað borð telja það hlutverk sitt að setja slíka merkimiða á sjónarmið annarra. Í lýðræðissamfélagi eru nefnilega öll viðhorf nútímaleg í sjálfu sér og réttmæt. Og Morgunblaðið mun ekki ráða því hvaða stjórnmálaflokkar sitja í ríkisstjórn hverju sinni, eins og dæmin sanna, og verður að hætta að ergja sig á því.
Greinin birtist í Morgunblaðinu 27. sept. 2007.