Athyglisverð skoðanakönnun á heimur.is

Vefsíðan www.heimur.is birti í dag niðurstöður skoðanakönnunar sem tímaritið Frjáls verslun hefur gert fyrir vefsvæðið.  Segja má að nokkrar athyglisverðar vísbendingar komi þar fram, enda þótt svarhlutfall sé, eins og í síðustu könnun Fréttablaðsins, rétt innan við 60%.  Vinstri græn eru mnæst stærsti stjórnmálaflokkur landsins skv. könnuninni en ríkisstjórnin heldur naumlega velli.

Ríkisstjórnarflokkarnir fá skv. þessari könnun 32 þingmenn en stjórnarandstaðan 31.  Að þessu leyti er könnunin frábrugðin flestum öðrum könnunum um þessar mundir sem gefa til kynna að meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks á þingi sé fallinn.  Nánar má lesa um þessa könnun hér.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband