Ný verkefni

Við ríkisstjórnarskiptin var kosið í allar fastanefndir Alþingis á nýjan leik.  Nú í hádeginu var ég kjörinn formaður utanríkismálanefndar Alþingis. 

Ég hlakka til að fá að starfa að utanríkismálunum og mun áreiðanlega njóta góðs af því að í nefndinni eru margir reyndir þingmenn og raunar 5 fyrrverandi ráðherrar einnig.  Þórunn Sveinbjarnardóttir fyrrv. umhverfisráðherra var kjörin varaformaður.

Á fundinum lýsti ég þeim ásetningi mínum að starfa vel með öllum nefndarmönnum og að ég myndi leggja mig fram um að unnt væri að ná sem víðtækastri samstöðu á vettvangi nefndarinnar um þau mál sem hún mun fá til umfjöllunar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldur Gautur Baldursson

Oft hefur verið þörf á góðu fólki í nefndir og ráð ríkisins, en núna er nauðsyn. Það verður ekki létt verk sem bíður þín og annarra sem tekið hafa setu í nefndinni. Ég sé að verkefnin eru ótal mörg og ekki af léttara taginu.

Ég hef nú ekki verið beinlínis hugmyndalaus síðustu mánuðina í því sem snýr að stjórnmálum og hvernig slíku valdi skuli best beitt. Ég er á þeirri skoðun að hugmynd sem kom fyrir nokkrum dögum síðan frá Steingrími Sigfússyni sé snilldargóð.  Hún fjallaði í stórum dráttum um hin "norrænu" sendiráð. Það er að segja það þá Norðurlandaþjóðirnar sameinast um byggingu eða sameiginlega aðstöðu fyrir sendiráðsskrifstofur sínar.  Þetta hefur borið góðan árangur að mér sé kunnugt og ljóst að í framtíðinni muni slíkt verða til hægðarauka fyrir alla sem koma að máli, fjárhagslega sem og frá diplómatísku sjónarmiði. Aukið samstarf Norðurlandanna gerir okkur sterkari sem heild.

Ég vona að þessi hugmynd fái framgang hjá stjórnvöldum.    Bestu kveðjur frá Stokkhólmi.

Baldur Gautur Baldursson, 10.2.2009 kl. 19:55

2 Smámynd: Elín Sigurðardóttir

Til hamingju með kjörið!

Elín Sigurðardóttir, 11.2.2009 kl. 21:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband