Tillaga VG um loftslagsráð í Reykjavík áfram til umræðu

Á fundi borgarráðs fyrir viku síðan lögðu fulltrúar Vinstri grænna til að stofnað yrði loftslagsráð í Reykjavík til að bregðast við upplýsingum í nýrri skýrslu um loftslagsmál.  Lagt var til að metnar yrðu og endurskoðaðar áætlanir borgarinnar í skipulags-, umhverfis- og samgöngumálum í þessu skyni.

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag að vísa tillögunni til frekari vinnslu í umhverfisráði.  Þar með er ljóst að tillagan mun fá efnislega umfjöllun á þeim vettvangi.  Við Vinstri græn eru ánægð með þessa málsmeðferð því það er mikilvægt að taka á loftslagsmálunum og loftgæðum í borginni.  Umræða undanfarnar vikur styður það að tekið sé á þessum málum.  Vonandi tekst góð samstaða á vettvangi borgarstjórnar, meiri- og minnihluta, til að taka þær viðvaranir sem loftslagsskýrslan sannarlega er alvarlega.

Tilgangur okkar Vinstri grænna með tillögunni er einmitt að vekja máls á þessu viðfangsefni og hvetja til þess að tekið sé á því með afgerandi hætti.

Tillöguna í heild ásamt greinargerð má lesa hér.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband