16.2.2009 | 15:16
Tek þátt í forvali Vinstri grænna
Forvalsyfirlýsing
Ég undirritaður hef ákveðið að gefa kost á mér í forvali Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Reykjavík, sem fram fer þann 7. mars nk. Ég hef setið á þingi síðan 2007 en þá skipaði ég annað sætið í Reykjavíkurkjördæmi norður. Ég mun sækjast eftir því að skipa áfram 2. sætið í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæmanna.
Vinstrihreyfingin grænt framboð hefur nú tekið að sér brýnt og vandasamt verkefni á miklum tímamótum í íslensku samfélagi. Þátttaka hreyfingarinnar í ríkisstjórn skiptir sköpum við endurmótun samfélagsins á nýjum grunni, samstöðu, jöfnuðar og réttlætis. Það er sannfæring mín að reynsla af fjölþættum störfum í stjórnmálum og félagsstarfi undanfarin ár geti nýst vel í því endurreisnarstarfi sem framundan er. Þess vegna sækist ég eftir að sinna áfram trúnaðarstörfum fyrir Vinstrihreyfinguna - grænt framboð.
Ég er kvæntur Sigurbjörgu Þorsteinsdóttur, ónæmisfræðingi og við eigum þrjú börn: Sigurð Kára, Arnbjörgu Soffíu og Ragnar Auðun.
Ég á sæti í fjórum nefndum Alþingis: utanríkismálanefnd (formaður), efnahags- og skattanefnd (varaformaður), samgöngunefnd (varaformaður) og allsherjarnefnd. Nánari persónulegar upplýsingar má nálgast á vef Alþingis: http://www.althingi.is.
Bloggsíða: www.arnith.blog.is.
Reykjavík, 16. febrúar 2009
Árni Þór Sigurðsson
alþingismaður
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:19 | Facebook
Athugasemdir
Gangi þér vel minn kæri. Þú ert dugnaðarforkur og fyrirmyndar þingmaður. Ég hefði samt vilja sjá þig taka "slaginn" og smella þér í þriðja sætið.
:)
kv. Gunnar
Gunnar Sigurðsson (IP-tala skráð) 16.2.2009 kl. 17:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.