Tek þátt í forvali Vinstri grænna

Forvalsyfirlýsing

 

Ég undirritaður hef ákveðið að gefa kost á mér í forvali Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Reykjavík, sem fram fer þann 7. mars nk.  Ég hef setið á þingi síðan 2007 en þá skipaði ég annað sætið í Reykjavíkurkjördæmi norður.  Ég mun sækjast eftir því að skipa áfram 2. sætið í öðru hvoru Reykjavíkur­kjördæmanna.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð hefur nú tekið að sér brýnt og vandasamt verkefni á miklum tímamótum í íslensku samfélagi.  Þátttaka hreyfingarinnar í ríkisstjórn skiptir sköpum við endurmótun samfélagsins á nýjum grunni, samstöðu, jöfnuðar og réttlætis.  Það er sannfæring mín að reynsla af fjölþættum störfum í stjórnmálum og félagsstarfi undanfarin ár geti nýst vel í því endurreisnarstarfi sem framundan er. Þess vegna sækist ég eftir að sinna áfram trúnaðarstörfum fyrir Vinstrihreyfinguna - grænt framboð.

Ég er kvæntur Sigurbjörgu Þorsteinsdóttur, ónæmisfræðingi og við eigum þrjú börn: Sigurð Kára, Arnbjörgu Soffíu og Ragnar Auðun.

Ég á sæti í fjórum nefndum Alþingis: utanríkismálanefnd (formaður), efnahags- og skattanefnd (varaformaður), samgöngunefnd (varaformaður) og allsherjarnefnd.  Nánari persónulegar upplýsingar má nálgast á vef Alþingis: http://www.althingi.is.

Bloggsíða: www.arnith.blog.is.  

Reykjavík, 16. febrúar 2009

Árni Þór Sigurðsson

alþingismaður 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gangi þér vel minn kæri. Þú ert dugnaðarforkur og fyrirmyndar þingmaður. Ég hefði samt vilja sjá þig taka "slaginn" og smella þér í þriðja sætið.

:) 

kv. Gunnar

Gunnar Sigurðsson (IP-tala skráð) 16.2.2009 kl. 17:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband