Varnarmálastofnun óþörf

Á þessum nefnda fundi um málefni Norðurslóða fjallaði ég um þessi mál undir heitinu "Norræn samvinna - nýtt upphaf."  Þar kom ég m.a. inn á Varnarmálastofnunina og sagði þar m.a.: 

Það er rétt að undirstrika strax að um loftrýmisgæsluna almennt var pólitískur ágreiningur og hann er enn til staðar.  Vel kann að vera að í hugum ýmissa sé geðþekkara að Norðurlöndin taki að sér þessa loftrýmisgæslu fremur en ýmis önnur ríki, og skemmst er að minnast að að ekki þótti heppilegt að Bretar kæmu hingað á aðventunni í kjölfar hryðjuverkalaganna sem þeir beittu okkur.  En grundvallaratriði í þessu efni er samt hvort gæsla af þessum toga hefur yfirleitt einhvern tilgang.  Mín afstaða í því efni hefur ekki breyst.  Ég tel að það séu engar haldbærar forsendur fyrir loftrýmisgæslunni og þær byggja sannarlega ekki á sjálfstæðu íslensku hagsmunamati, enda liggur slíkt ekki fyrir.  Ég tel að það hafi verið beinlínis rangt að taka ákvörðun um þær æfingar á sínum tíma og bíða ekki eftir þeirri vinnu sem var sett af stað af hálfu stjórnvalda til að meta áhættu og greina þörf okkar fyrir starfsemi af þessum toga.  Sú vinna mun þó vonandi fljótlega líta dagsins ljós.  Í meginatriðum er ég þeirrar skoðunar að það eftirlit með loftrými sem við teljum nauðsynlegt eigi að vera í höndum stofnana eins og Flugmálastjórnar og Landhelgisgæslu og stofnun Varnarmálastofnunar hafi verið óþörf.  Þá ákvörðun á hiklaust að endurmeta.  Efnahagshrunið og –þrotið kallar á mikinn niðurskurð – og það er fráleitt annað en að varnarmálin verði hluti af því dæmi og raunar miklu fremur en margir aðrir málaflokkar.


mbl.is Varnarmálastofnun leifar af liðnum tíma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Erindi ykkar Björns voru áhugaverð, ekki síðst fyrir hvað þið voruð að mörgu leyti sammála. Nú þurfa menn að vera fljótir að skera niður óþarfa og líklega er Varnarmálstofnun þar á meðal.

Eftir á að koma í ljóst hvort hugmyndir Stoltenbergs verða að veruleika. Ég heyrði ekki betur en Carl Bildt væri eitthvað að nöldra um ESB, á fundi utanríkisráðherranna. Það var góður punktur hjá Birni, að halda ESB utan Norðurhjarans. Ég hugsa Árni, að þú sért sammála.

Loftur Altice Þorsteinsson, 17.2.2009 kl. 22:36

2 Smámynd: Elín Sigurðardóttir

Heyr heyr! Um að gera að endurskoða og endurmeta hvernig "vörnum" landsins er háttað. Tel engan vegin réttlætanlegt að nánast leggja af þróunarsamvinnu til þess að "bjarga" varnarmálastofnun!

Elín Sigurðardóttir, 18.2.2009 kl. 11:35

3 identicon

Hjartanlega sammála þér Árni.

Bara sú staðreynd að hafa hér eitthvað sem heitir Varnarmálastofnun er eitt. Dregur fram söguna af  Morgen Glistrup, en hann lagði upp, á Kaldastríðsárunum, með að leggja niður danska herinn og hafa bara símsvara á rússnesku sem sagði "þetta er hjá danska hernum við gefumst upp"

Gunnar Sigurðsson (IP-tala skráð) 18.2.2009 kl. 11:59

4 Smámynd: Baldur Gautur Baldursson

Vonandi komu þankar mínir að einhverju gagni, jafnvel vöktu þanka hjá ykkur í nefndinni. Kveðja, B

Baldur Gautur Baldursson, 18.2.2009 kl. 18:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband