8.2.2007 | 15:23
Framtíðarlandið áfram þverpólitísk samtök
Ákvörðun félagsfundar Framtíðarlandsins í gærkvöldi, um að bjóða ekki fram lista til Alþingis undir nafni samtakanna, tryggir að þau geta áfram verið þverpólitísk baráttusamtök fyrir umhverfis- og náttúruvernd í landinu. Það var skynsamleg niðurstaða.
Í Framtíðarlandinu eru félagar úr flestum ef ekki öllum stjórnmálaflokkum, og það hefði væntanlega dregið allan mátt úr starfi Framtíðarlandsins, ef boðið hefði verið fram í nafni samtakanna. Þau eru og verða áfram mikilvæg grasrótarsamtök sem berjast í þágu náttúrunnar og umhverfissjónarmiða.
Hitt getur svo vel verið að einstaklingar úr röðum samtakanna, væntanlega þeir sem eru til hægri eða á miðju stjórnmálanna, ákveði að bjóða fram í eigin nafni. Það mun koma í ljós á næstunni og getur orðið spennandi viðbót við þá flóru hugsanlegra framboða sem nú er í deiglunni. Slíkt framboð mun þá fyrst og fremst höfða til þeirra er alla jafna styðja Sjálfstæðisflokk eða Framsóknarflokk, en hafa fengið nóg af stóriðjustefnu ríkisstjórnarinnar.
Fellt á fundi Framtíðarlandsins að bjóða fram til Alþingis | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.